2. janúar 2025
12. desember 2021
Barbara Hannigan og Sinfó - Efnisskrá opinberuð !
Kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan kemur nú í fyrsta sinn til Íslands og er víst að tónleikar þessarar frábæru tónlistarkonu verða stórviðburður í tónlistarlífinu. Barbara Hannigan stjórnar og syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvennum tónleikum í Eldborg í Hörpu á opnunarhelgi Listahátíðar í Reykjavík í vor.
Á efnisskrána hefur Hannigan valið fjölbreytt úrval verka frá fyrstu áratugum 20. aldar, allt frá heillandi síðrómantík yfir í hressilega sveiflu Broadway-söngleikja. Syrpa með eftirlætislögum úr söngleikjum George Gershwin hefur farið sigurför um heiminn eftir að Hannigan söng hana inn á plötu árið 2018, en svítan úr Lulu sýnir aðra hið á þessari glæsilegu söngkonu, en hún hefur vakið heimsathygli fyrir túlkun sína á söguhetjunni í óperunni Lulu eftir Alban Berg. Fyrir hlé verður Hannigan eingöngu í hlutverki hljómsveitarstjórans, í heillandi tilvistarspurningu brautryðjandans Charles Ives og dásamlegu tónaljóði Arnolds Schönberg, Uppljómuð nótt, sem var eitt síðasta verk hans í tjáningarríkum, síðrómantískum stíl áður en hann tók að marka braut módernismans í tónlistinni.
Efnisskrá tónleikanna er sem hér segir :
Ives Unanswered Question
Schoenberg Verklaerte Nacht
-
Berg Lulu Suite
Gershwin Girl Crazy Suite (útsett af Bill Elliott)
Tónleikarnir fara fram í Eldborg í Hörpu 3. og 4. júní 2022.