
28. febrúar 2025
30. maí -14. júní 2026
28. febrúar 2025
Hvaða framúrskarandi menningarverkefni hlýtur Eyrarrósina 2025?
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair auglýsa nú í nítjánda sinn eftir umsóknum um Eyrarrósina, viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni í landsbyggðunum. Horft er til þess að verkefnið hafi fest sig í sessi, verið starfrækt í yfir þrjú ár og hafi áhrif á menningarlíf á sínu landssvæði.
Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hlaut Eyrarrósina árið 2023 en meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Handbendi á Hvammstanga, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Skaftfell, Frystiklefann á Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska vinda í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði og Skjaldborg á Patreksfirði.
Eyrarrósarhafinn hlýtur 2,5 milljón króna peningaverðlaun. Framleitt verður sérstakt myndband um verkefnið og því gefinn kostur á að standa að viðburði á aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2026.
Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar
Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar verða nú veitt í þriðja sinn til þriggja verkefna sem hafa eru nýleg eða enn í þróun en sýna faglegan metnað bæði í rekstri og listrænni sýn. Hver hvatningarverðlaun eru 750 þúsund krónur.
Verndari Eyrarrósarinnar er hr. Björn Skúlason, maki forseta Íslands
Umsóknarfrestur um Eyrarrósina og hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar er til kl. 16:00 mánudaginn 24. mars.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og umsóknareyðublað má finna á vef Listahátíðar: www.listahatid.is/eyrarrosin