30. maí -14. júní 2026

Opnunarpartý Klúbbsins- Superserious

1. JÚN
20:30
IÐNÓ

Við þeytum Klúbbdyrunum upp á gátt! Ferskasta indírokksveit landsins, Superserious, spilar á sjóðheitu opnunarkvöldi Klúbbsins og plötusnúðar sjá svo um að við dönsum inn í nóttina. Komið eins og þið eruð eða viljið vera!

Hljómsveitinni Superserious hefur verið lýst sem næsta stóra indí-bandinu frá Íslandi. Hún var valin besta nýja sveitin á Airwaves 2022 og hefur átt lög í efstu sætum vinsældalista X-ins og Rásar 2. Fyrsta breiðskífa þeirra kemur út í apríl.

Daníel Jón Jónsson
Kristinn Þór Óskarsson
Haukur Jóhannesson
Helgi Einarsson
Ókeypis

Aðgengi

Hjólastólaaðgengi er í Iðnó. Næsta strætóstoppistöð heitir Ráðhúsið. Stoppistöðin MR er einnig nærri sem og Hallargarðurinn. 

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 13