Ingibjörg Turchi og hljómsveit / Djasskrakkar
Rafbassaleikarinn Ingibjörg Turchi og hljómsveit leika verk af plötum Ingibjargar, Meliae (2020) og Stropha (2023) í bland við spuna. Tónlist Ingibjargar má lýsa sem einskonar blöndu hins rafmagnaða og hins náttúrulega. Ingibjörg og félagar skapa einstakan og dáleiðandi hljóðheim þar sem hið kunnuglega verður framandi á ný. Ingibjörg hefur m.a. hlotið Kraumsverðlaunin, viðurkenningu fyrir plötu ársins hjá Morgunblaðinu og fengið Íslensku tónlistarverðlaunin.
Djasskrakkar sjá um að hita tónleikagesti upp. Djasskrakkar er hljómsveit skipuð mosfellskum krökkum á aldrinum 9-13 ára sem hafa lært að spila djass eftir eyranu og spinna undir stjórn Odd André Elveland. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þau spilað víða, m.a. á Kids in Jazz-hátíðinni í Noregi auk þess sem þau eru gestgjafar tónlistarhátíðarinnar Barnadjass í Mosó.
Aðstandendur:
Djasskrakkar: Edda Margrét Jonasdóttir klarinett, Emil Huldar Jonasson píanó, Margrét Helga Einarsdóttir trommur, Rakel Elaisa Allansdóttir trompet, Svandís Erla Pétursdóttir saxófónn, Odd André Elveland stjórnandi og Guðrún Rútsdóttir framkvæmdastjóri.
Ingibjörg Turchi og hljómsveit:
Ingibjörg Elsa Turchi: Rafbassi og tónsmíðar Hróðmar Sigurðsson: Rafgítar og lap steel gítar Magnús Jóhann Ragnarsson: Píanó, Magnús Trygvason Eliassen: Slagverk, Tumi Árnason: Tenórsaxófónn
https://www.facebook.com/Barnadjass
https://ingibjrgturchi.bandcamp.com/
Photo credits: Art Bitnick
20:30-22.00
Djasskrakkar:
Barnamenningarsjóður
Tónlistarsjóður Rannís
Mosfellsbær
Kiwanisklúbburinn Mosfell
Aðgengi
Hjólastólaaðgengi er í Iðnó.
Auka upplýsingar um aðgengi á viðburðinum eru hér.
Næsta strætóstoppistöð heitir Ráðhúsið. Stoppistöðin MR er einnig nærri sem og Hallargarðurinn.