1.-16. júní 2024

Brot úr framtíð

8. JÚN - 5. JAN
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS

Myndlist og núminjar mætast í Þjóðminjasafninu

Sýningin Brot úr framtíð tekur saman myndlistarverkefni og listrannsókn Þorgerðar Ólafsdóttur þar sem hún veltir fyrir sér fyrirbærum tengdum mannöld og hugmyndum um menningar- og náttúruarf.

Á sýningunni má sjá listaverk og ólíka fundna muni úr náttúrunni, stóra og smáa, sem eru samofnir sögu mannsins og áhrifa hans sem ná langt út fyrir himinhvolf jarðarinnar. Verkefnið má rekja aftur til ársins 2014 þegar Þorgerður aðstoðaði Fornleifastofnun Íslands við skráningu muna sem fundust við fornleifarannsókn í Mývatnssveit. Þar fékk hún í hendurnar lítið rautt plastbrot með óræða sögu sem varð upphafið að samstarfi hennar og Þjóðminjasafns Íslands. Sýningin spannar því um tíu ára langt ferli þar sem listakonan hefur safnað óræðum gripum sem snúið er að ná utan um.

Brot úr framtíð er sýning á vegum Þjóðminjasafns Íslands og er unnin í samstarfi við hönnuðinn Garðar Eyjólfsson og rannsóknarverkefnið Relics of Nature við Háskólann í Osló.

Í verkum sínum skoðar Þorgerður iðulega hluti sem eru samofnir skilningi okkar og sambandi við náttúruna á tímum mikillar vitundarvakningar. Undir formerkjum Studio Eyjolfsson hefur Garðar einblínt á betrumbætingu og nýtingu staðbundins hráefnis í vöruhönnun og stundað rannsóknir sem hverfast um hönnunarskáldskap.

Myndlistarkona & sýningarhöfundur: Þorgerður Ólafsdóttir
Sýningarhönnuður: Garðar Eyjólfsson
Sýningarnefnd: Bryndís Erla Hjálmarsdóttir, Kristján Mímisson, Þóra Pétursdóttir
Í samstarfi við: Þjóðminjasafn Íslands
Þakkir: Ármann Guðmundson, Becky Forsythe, Fornleifastofnun Íslands, Hrönn Konráðsdóttir, Ívar Brynjólfsson, Relics of Nature

Þorgerður Ólafsdóttir (IS)

8. júní 2024 - 5. janúar 2025
Opið alla daga vikunnar kl. 10:00 - 17:00

0 - 2.500 kr

Þjóðminjasafn Íslands
Relics of Nature
Háskólinn í Osló
Myndlistarsjóður
Launasjóður listamanna

Aðgengi

Gott hjólastólaaðgengi. Næsta strætóstoppistöð heitir Þjóðminjasafnið. Stoppistöðin Háskóli Íslands er einnig nærri.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 1
LEIÐ 3
LEIÐ 6
LEIÐ 11
LEIÐ 12
LEIÐ 55