1.-16. júní 2024

Í lausu lofti

8. JÚN - 7. JÚL
GALLERÍ ÚTHVERFA, ÍSAFIRÐI

Kostulegir skúlptúrar á Ísafirði

Sýningin Í lausu lofti samanstendur af nýjum skúlptúrum Auðar Lóu Guðnadóttur sem sýndir verða í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Sýningin fjallar um það að tilheyra og tilheyra ekki, græna páfagauka í almenningsgörðum Lundúna, flöskuskeyti og allt þar á milli.

Auður Lóa býr og starfar í Reykjavík, en hún útskrifaðist af myndlistarsviði Listaháskóla Íslands árið 2015. Hún hefur sýnt víða og hlaut árið 2018 hvatningarverðlaun myndlistarráðs fyrir sýninguna Díana, að eilífu. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu, Já / Nei, í D-sal Listasafns Reykjavíkur. Auður Lóa hefur einbeitt sér að skúlptúrum úr máluðum pappamassa en sá grófi og óstýriláti efniviður ljáir verkum hennar kostulegan og sérstæðan blæ. Með notkun þessa að því er virðist léttvæga efnis nær hún fram óvæntri dýpt og býður upp á óhefðbundið sjónarhorn á viðfangsefni sín.

Listamaður: Auður Lóa Guðnadóttir
Tæknimaður: Starkaður Sigurðarson
Umsjón sýningarstaðar: Elísabet Gunnarsdóttir

Auður Lóa Guðnadóttir (IS)

Opnun 8. júní kl 16:00
Opnunartími: Fim-fös kl. 16:00-18:00 og eftir samkomulagi í síma 868 1845

Ókeypis

Aðgengi

Skert aðgengi er fyrir hjólastóla í Gallerí Úthverfu. Farið er um tröppur til að komast að aðalinngangi. Aðgengi fyrir hjólastóla er um bakdyr. Þröskuldar eru innanhúss sem hægt er að fara um með aðstoð. Gestgjafar eru ávallt til staðar og greiða fyrir aðgengi.