1.-16. júní 2024

Endurfundir

16. JÚN
16:00
HÁTEIGSKIRKJA

Ný íslensk tónlist fyrir strengi

Cauda Collective flytur fimm glóðvolg tón­verk eftir meðlimi listhópsins Errata. Frumflutt verða strengjatríó eftir Halldór Smárason, Hauk Þór Harðarson og Petter Ekman og einnig leiknir nýlegir strengjakvartettar eftir Báru Gísladóttur og Finn Karlsson.

Listhópinn Errata skipa tónskáld sem hafa átt í frjóu, listrænu samtali í rúman áratug. Errata hafa starfað með tónlistarfólki víða um heim og staðið fyrir metnaðarfullum listviðburðum. Cauda Collective er hópur skapandi tónlistarflytjenda sem horfa út fyrir rammann í flutningi sínum. Í starfi hópsins er lögð áhersla á að vinna náið með tónskáldum og hefur hópurinn frumflutt fjölda nýrra tónverka. Að þessu sinni verða flytjendur þær Sigrún Harðardóttir og Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðluleikarar, Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari.

Endurfundir eru samstarfsverkefni tónlistar­hátíðarinnar Við Djúpið á Ísafirði og Listahátíðar í Reykjavík.

Bára Gísladóttir
Finnur Karlsson
Halldór Smárason
Haukur Þór Harðarson
Petter Ekman
Sigrún Harðardóttir
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir
Þóra Margrét Sveinsdóttir
Þórdís Gerður Jónsdóttir
3.900 kr
Kaupa miða

Aðgengi

Mjög gott hjólastólaaðgengi.
Næsta strætóstoppistöð heitir Háteigskirkja. Stoppistöðin Flókagata er einnig nálægt.

Strætóleiðir á viðburð
LEIÐ 11
LEIÐ 13

Myndaalbúm