Eyrarrósin
Eyrarrósin er viðurkenning veitt framúrskarandi menningarverkefni í landsbyggðunum sem hefur fest sig rækilega í sessi, verið starfrækt í að minnsta kosti þrjú ár, er vel rekið, með skýra framtíðarsýn og hefur listrænt og menningarlegt gildi. Verðlaunin, sem veitt hafa verið frá árinu 2005, eru nú veitt annað hvert ár og á því ári sem Listahátíð í Reykjavík fer ekki fram. Frá upphafi hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair staðið saman að viðurkenningunni. Verndari Eyrarrósarinnar er hr. Björn Skúlason, maki forseta.
Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði lista og menningar. Eyrarrósinni fylgir 2,5 milljón króna verðlaunafé. Að auki eru í nafni Eyrarrósarinnar veitt þrenn hvatningarverðlaun til nýrra verkefna sem farin eru af stað eða eru enn í þróun og fylgir hverju þeirra 750 þúsund króna verðlaunafé.
Eyrarrósin
Auk peningaverðlauna verður stutt og vandað heimildamyndband framleitt um Eyrarrósarhafann og verður honum einnig boðið að standa að veglegum viðburði á Listahátíð árið eftir að viðurkenningin er veitt. Viðburðurinn getur annað hvort farið fram í heimabyggð eða öðru byggðarlagi. Boðinu fylgir fjárhagslegur stuðningur til framleiðslu viðburðar og fyrir mögulegum flutnings- og ferðakostnaði. Viðburðurinn verður kynntur sem hluti af aðaldagskrá hátíðarinnar. Staðsetning og fyrirkomulag viðburðarins er ákveðin í samráði við stjórnendur Listahátíðar í Reykjavík hverju sinni.
Umsækjendur um Eyrarrósina þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
· Að verkefnið hafi fest sig í sessi og sé eldra en þriggja ára.
· Að verkefnið hafi listrænan og samfélagslegan slagkraft.
· Að framtíðarsýn fyrir verkefnið sé skýr og stórhuga.
· Að vel hafi verið staðið að rekstri verkefnisins.
· Að verkefnið sé viðbót við menningarlandslagið í sínu nærumhverfi og auki fjölbreytileika menningarframboðs á svæðinu.
· Að verkefnið sé ekki rekið í hagnaðarskyni eða á vegum opinberra aðila.
Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar
Við val á handhöfum hvatningaverðlauna verður eftirfarandi haft að leiðarljósi:
· Að verkefnið sé nýlegt og jafnvel enn í þróun.
· Að verkefnið hafi alla burði til þess að festa sig varanlega í sessi.
· Að verkefnið hafi listrænan og samfélagslegan slagkraft.
· Að framtíðarsýn fyrir verkefnið sé skýr og stórhuga.
· Að verkefnið sé viðbót við menningarlandslagið í sínu nærumhverfi og auki fjölbreytileika menningarframboðs.
· Að verkefnið sé ekki á vegum opinberra aðila eða rekið í hagnaðarskyni.
Nánari upplýsingar fyrir umsækjendur og umsóknareyðublað má finna hér.